Ferðalög

Frásagnir af ferðalögum og tilkynningar þar að lútandi.

Vorganga Ættfræðifélagsins 30. maí   Létt ganga um miðbæ Reykjavíkur

Vorganga Ættfræðifélagsins 30. maí Létt ganga um miðbæ Reykjavíkur

Nú stendur Ættfræðifélagið fyrir göngu um fornar slóðir Reykvíkinga. Guðjón Friðriksson ætlar að ausa af fróðleiksbrunni sínum um sögu Reykjavíkur. Hús og íbúar þess, umhverfi og pólitík fortíðar ber áreiðanlega á góma. Við ætlum að hittast við Bryggjuhúsið (Vesturgötu 2) og röltum um Grjótaþorpið og Aðalstræti og „lesum húsin“ með leiðsögn Guðjóns. Saga og fortíð er á hverju horni.

Gangan hefst klukkan 14 laugardaginn 30.maí og eru allir velkomnir.

Höfundur: aettadmin in Ferðalög, Fréttir, Göngur
Vorganga Ættfræðifélagsins

Vorganga Ættfræðifélagsins

Vorgangan verður farin fimmtudaginn 22. maí kl. 11:00 undir leiðsögn Ragnars Snæs Karlssonar.
Gengið verður í Gálgahrauni að Gálgakletti, sem er gamli aftökustaðurinn frá Bessastöðum. Um 2,5 km ganga báðar leiðir. Gangan er ekki alls staðar góð og greiðfær. Á köflum getur hún verið erfið fyrir þá sem ekki eru fótvissir. Mælt er með göngfustöfum. Búið ykkur eftir veðri.
Bílastæði eru við jaðar Gálgahrauns, í Sjálandshverfi í Garðabæ við hringtorgið á gatnamótum Vífilsstaðavegar og Hraunsholtsbrautar. Gangan getur tekið um 2-3 klst.

Höfundur: aettadmin in Ferðalög, Fréttir, Göngur