Glaðbeittir stjórnarmenn Ættfræðifélagsins líta framtíðina björtum augum

Ættfræðifélagið er enn í fullu fjöri „Fréttir af andláti mínu eru stórlega ýktar“

Í síðasta Fréttabréfi félagsins voru menn bölsýnir og töldu félagið jafnvel dauðadæmt. Það væri hæpið að nokkur sála fengist í stjórn. Við vorum nokkur sem vildum taka við keflinu og ný stjórn tók við á aðalfundi 26.febrúar 2026. Við erum flest nýgræðingar í stjórninni og höfum verið að stilla saman strengi okkar. Ættfræðigrúsk og persónusaga er að okkar mati í sókn í samfélaginu. Ungt fólk hefur skráð sig í félagið að undanförnu og er það ánægjulegt.

Nú laugardaginn 2. maí klukkan 14 verður félagsfundur í Færeyska sjómannaheimilinu Brautarholti 29. Einar Már Guðmundsson rithöfundur ætlar að halda þar erindi um not af persónusögu og ættfræði við ritstörf.

Hlökkum til að sjá sem flesta!

Stjórnin.

Samfélagsmiðlar