Lesið milli línanna – Að skrifa sögur um formæður og löngu liðna tíð – Félagsfundur 28. nóvember

Á félagsfundi Ættfræðifélagsins næstkomandi laugardag kl. 14 í mun Sveinbjörg Sveinbjörnsdóttir, félagi í Ættfræðifélaginu, fjalla um rannsóknir sínar og skáldskap í bókunum Aldrei nema kona, Aldrei nema vinnukona og Aldrei aftur vinnukona.

Sveinbjörg starfaði sem kennari í nær 40 ár, lengst af við Fjölbrautaskólann við Ármúla. Áhugi hennar á ættfræði leiddi hana til rannsókna á formæðrum sínum í Skagafirði, þar sem hún nýtti sér kirkjubækur og ættfræðirit til að leita heimilda um líf þeirra og aðstæður.

Í viðtali á skáld.is segir hún frá því hvernig áhuginn á formæðrunum kviknaði:

„Ég dróst náttúrlega inn í þessa vinnu sem felur í sér leit að fólki í kirkjubókum og ættfræðiritum. Fljótlega fór ég að verða forvitin um mínar eigin ættir, sérstaklega formæður mínar í móðurætt sem afi hafði aldrei sýnt neinn áhuga á að fjalla um, kannski vegna þess að þegar grannt er skoðað og farið aftur á 19. öld má þar finna falleraðar konur og fjölþreifna karla. …Þegar ég fór að fletta sögubókum fann ég litlar heimildir um hina hversdagslegu alþýðukonu en frásagnir af körlum voru ekki af skornum skammti.“

Á fundinum gefst tækifæri til að kynnast því hvernig ættfræðirannsóknir geta orðið að lifandi frásögnum og hvernig má fylla í eyðurnar þegar heimildir um líf formæðranna eru fábrotnar.

Umræður að erindi loknu. Kaffi og með því.

Fundurinn verður laugardaginn 28. nóvember kl. 14 í sal Færeyska sjómannaheimilisins að Brautarholti 29, allir velkomnir!