Hvaða óvæntu sögur geta komið í ljós þegar farið er að rekja ættartengsl? Á næsta félagsfundi Ættfræðifélagsins verður Sigríður Kristín Þorgrímsdóttir sagnfræðingur gestur okkar með erindið Skemmtilegar uppgötvanir í ættfræðigrúskinu.
Fundurinn verður laugardaginn 26. september kl. 14 í sal Færeyska sjómannaheimilisins að Brautarholti 29.
Sigríður segir frá skemmtilegum ættfræðilegum uppgötvunum við ritun tveggja síðustu bóka sinna, Jakobína – saga skálds og konu og Piparmeyjar: fröken Thora og saga einhleypra kvenna á Íslandi.
Að rýna í ættartengsl Íslendinga er eins og að lesa spennandi reyfara – ómögulegt er að segja hvað gerist næst!
Meðal spurninga sem hún svarar í erindinu eru:
- Hvað varð til þess að hún sá æskuár sín og líf föður síns í glænýju ljósi þegar hún kortlagði ættartengslin í sveitinni
- Hver var Rikka á Kálfaströnd?
- Hvernig tengdist Dóri nágranni söguhetjum Piparmeyja?
Sigríður er með MA-próf í sagnfræði frá Háskóla Íslands. Hún kenndi sögu í framhaldsskóla um árabil en starfaði lengst af sem sérfræðingur hjá Byggðastofnun. Eftir hana liggja fjölmörg rit á sviði sagnfræði, auk greina og útvarpsþátta um sagnfræðilegt efni.
Allir velkomnir!

