#Uppruni

Kristmundur Hjaltason kynnir ættfræðiforrit sitt Uppruna – Félagsfundur 24. október

Kristmundur Hjaltason kynnir ættfræðiforrit sitt Uppruna – Félagsfundur 24. október

Hvernig getur nýtt ættfræðiforrit auðveldað skráningu, rannsóknir og úrvinnslu ættfræðigagna?

Á næsta félagsfundi Ættfræðifélagsins kynnir Kristmundur Hjaltason ættfræðiforrit sitt Uppruna.  Farið verður yfir helstu möguleika forritsins og sýnt hvernig það nýtist við daglega ættfræðivinnu.

Meðal þess sem kynnt verður er skráning og leit, gerð ættartrjáa og skýrslna, innflutningur gagna úr Espólín og hvernig forritið getur hjálpað til við að finna villur og misræmi í gögnum.

Hugmyndir notenda skipta máli!

Kristmundur vill einnig fá ábendingar og hugmyndir um hvaða möguleika fólk myndi vilja sjá í ættfræðiforriti. Hvaða verkefni mætti einfalda? Hvaða upplýsingar væri gagnlegt að geta haldið betur utan um? Hvað myndi auðvelda rannsóknir og úrvinnslu ættfræðigagna?

Fundargestir eru hvattir til að mæta með hugmyndir að því sem þeir myndu vilja geta gert með forritinu. Ekki þarf að vita hvort tilteknar hugmyndir séu tæknilega framkvæmanlegar eða hvort slíkir möguleikar séu þegar til staðar. Markmiðið er að fá fram þarfir og hugmyndir notenda sem geta nýst við áframhaldandi þróun Uppruna.

Fundurinn verður laugardaginn 24. október kl. 14 í sal Færeyska sjómannaheimilisins að Brautarholti 29

Fundurinn er opinn öllum! Við hvetjum félagsmenn og aðra áhugasama til að mæta, kynna sér forritið og taka þátt í umræðum yfir kaffi og meðlæti.

Höfundur: aettadmin in Fréttir, Fundir, Viðburðir