Næsti félagsfundur Ættfræðifélagsins verður haldinn 2. maí kl 14:00 í Færeyska sjómannaheimilinu, Brautarholti 29. Fundurinn er öllum opinn.
Einar Már Guðmundsson rithöfundur hefur skrifað fjölmargar bækur og fengið almennt lof og verðlaun fyrir skrif sín. Eins og margir rithöfundar hefur hann leitað í persónusögu og ættfræði sem eldsneyti fyrir skáldskapinn. Nú ætlar hann að lofa okkur að heyra persónulegar vangaveltur um þetta viðfangsefni.
Við ætlum að hafa fundinn nú með öðru sniði til gamans. Fundargestir setjast við borð merktu upprunastað föður eða móður eða enn lengra aftur. Fyrst hlustum við á vangaveltur Einars Más. Þá gefum við okkur tíma til að rekja ættir, landfræðilegan uppruna og sögu. Eftir þetta spjall ræðum við um framtíð og hlutverk félagsins og veltum fyrir okkur nokkrum spurningum.
Sýnum hug okkar til Ættfræðifélagsins, fjölmennum á fundinn og takið með ykkur gesti!
Boðið verður upp á kaffi og meðlæti.
Stjórnin.

