Calendar of Events

Latest Past Events

Vorganga Ættfræðifélagsins

Gálgahraunjaðar Hraunholtsbraut, hringtorg, Garðabær

Vorgangan verður farin fimmtudaginn 22. maí kl. 11:00 undir leiðsögn Ragnars Snæs Karlssonar. Gengið verður í Gálgahrauni að Gálgakletti, sem er gamli aftökustaðurinn frá Bessastöðum. Um 2,5 km ganga báðar leiðir. Gangan er ekki alls staðar góð og greiðfær. Á köflum getur hún verið erfið fyrir þá sem ekki eru fótvissir. Mælt er með göngfustöfum.Continue reading →

Vorganga um Álftanes

Bessastaðakirkja Bessastaðir, Álftanes

Nú þegar sumrið er á næsta leiti höfum við haft vorgöngu Ættfræðifélagsins og verður engin breyting á því. Við munum fara í gönguna laugardaginn 25. maí kl. 11:00. Mæting er á bílastæðin neðan við Bessastaðakirkju og verður gengið þaðan um Álftanesið. Kirkjan verður heimsótt og skansinn þar sem Óli Skans bjó og ef til villContinue reading →

Vorgangan um Laugarneshverfið

Listasafn Sigurjóns Ólafssonar Laugarnestanga 70, Reykjavík

Fimmtudaginn 18. maí, á uppstigningardag, verður hin hefðbundna vorganga Ættfræðifélagsins. Þá verður gengið um Laugarneshverfið. Þar raða sér glæstar byggingar Einars Sveinssonar, Guðjóns Samúelssonar og Ásmundar Sveinssonar, gömul hús stríðsáranna af flugvellinum, gömlu Þvottalaugarnar og undir fótum okkar renna Fúlilækurinn og Laugalækurinn. Leiðsögumenn verða Guðfinna Ragnarsdóttir og Magnús Grímsson. Mæting við Laugarneskirkju kl. 11:00.