• Vorgangan um Laugarneshverfið

    Listasafn Sigurjóns Ólafssonar Laugarnestanga 70, Reykjavík, Iceland

    Fimmtudaginn 18. maí, á uppstigningardag, verður hin hefðbundna vorganga Ættfræðifélagsins. Þá verður gengið um Laugarneshverfið. Þar raða sér glæstar byggingar Einars Sveinssonar, Guðjóns Samúelssonar og Ásmundar Sveinssonar, gömul hús stríðsáranna af flugvellinum, gömlu Þvottalaugarnar og undir fótum okkar renna Fúlilækurinn og Laugalækurinn. Leiðsögumenn verða Guðfinna Ragnarsdóttir og Magnús Grímsson. Mæting við Laugarneskirkju kl. 11:00.

  • „Þegar fylgdarskipið fórst”

    Þjóðskjalasafn Íslands Laugavegur 162, Reykjavík, Iceland

    Fimmtudaginn 5. október flytur Halldór Baldursson sagnfræðingur og læknir fyrirlestur um herskipið Göteborg úr flota konungs vors, Friðriks fjórða. Skipinu var hleypt til brots á Hraunsskeiði í Ölfusi 7. nóvember 1718. 174 skipverjar björguðust og þurftu að hafa vetursetu á Íslandi. Fjallað er um þau stjórnsýslulegu verkefni sem þurfti að leysa úr vegna strandsins. AthugiðContinue reading →

  • Fréttabréf Ættfræðifélagsins 40 ára

    Þjóðskjalasafn Íslands Laugavegur 162, Reykjavík, Iceland

    Um þessar mundir eru 40 ár síðan Fréttabréf Ættfræðifélagsins sá fyrst dagsins ljós. Fundurinn er helgaður fréttabréfinu að þessu sinni og verður útgáfa þess kynnt og lesnar valdar greinar eða útdráttur úr greinum frá ýmsum tímum. Dagskránni stjórnar ritstjóri Fréttabréfins, Guðfinna Ragnarsdóttir Fundurinn er haldinn í Þjóðskjalasafninu, 3. hæð á fimmtudaginn 26. október og hefstContinue reading →

  • Að máta sig við söguna

    Þjóðskjalasafn Íslands Laugavegur 162, Reykjavík, Iceland

    Næsti félagsfundur Ættfræðifélagsins verður fimmtudaginn 30. nóvember. Þá mun Guðfinna Ragnarsdóttir, ritstjóri Fréttabréfs Ættfræðifélagsins, halda fyrirlestur sem hún kallar Að máta sig við söguna. Fyrirlesturinn verður haldinn í Þjóðskjalasafninu á þriðju hæð og hefst hann kl. 16:00. Allir velkomnir! Kaffi og með því

  • Hnífsdalur

    Þjóðskjalasafn Íslands Laugavegur 162, Reykjavík, Iceland

    Gleðilegt nýtt ár Fyrsti félagsfundur ársins verður haldinn fimmtudaginn 25. janúar, kl. 16:00. Þá mun Kristján Pálsson sagnfræðingur og fv. alþingismaður flytja erindi um Hnífsdal, en bók hans Saga Hnífsdals kom út fyrir jólin. Saga Hnífsdals er saga fólksins þar frá landnámi til sameiningar við Ísafjörð árið 1971. Hér er lýst sviptingasamri jarðasögu, frá eignarhaldiContinue reading →

  • Aðalfundur Ættfræðifélagsins fyrir árið 2023

    Þjóðskjalasafn Íslands Laugavegur 162, Reykjavík, Iceland
    Aðalfundir

    Aðalfundur Ættfræðifélagsins fyrir árið 2023 verður haldinn fimmtudaginn 29. febrúar 2024 í Þjóðskjalasafninu, 3. hæð. Venjuleg aðalfundarstörf. Fundurinn hefst kl. 16:00 Kaffi og meðlæti eftir fund Fundurinn er opinn öllum

  • Um færeyska kútterinn Anna úr Tóftum og fleiri kúttera

    Örkin, færeyska sjómannaheimilið Brautarholt 29, Reykjavík, Iceland

    Næsti félagsfundur Ættfræðifélagsins verður haldinn á nýjum stað, Færeyska sjómannaheimilinu. Örkinni, á horni Skipholts og Brautarholts í Reykjavík og verður haldinn fimmtudaginn 28. mars, sem ber upp á skírdag að þessu sinni. Á fundinum ætlar Ragnar Sævar Karlsson að tala um færeyska kútterinn Önnu úr Tóftum og nokkra aðra færeyska kúttera sem farist hafa hérContinue reading →

  • Félagsfundur í apríl fellur niður

    Samkvæmt venju ætti síðasti félagsfundur Ættfræðifélagsins á þessu vori að vera síðasta fimmtudag í apríl-mánuði, þann 25. apríl, en þar sem hann ber upp á sumardaginn fyrsta þá fellur fundur niður. Næsti viðburður félagsins er þvi vorgangan sem verður auglýst nánar síðar. Þráðurinn verður svo tekinn upp aftur í haust. Stjórn Ættfræðifélagsins óskar öllum félagsmönnumContinue reading →

  • Vorganga um Álftanes

    Bessastaðakirkja Bessastaðir, Álftanes, Iceland

    Nú þegar sumrið er á næsta leiti höfum við haft vorgöngu Ættfræðifélagsins og verður engin breyting á því. Við munum fara í gönguna laugardaginn 25. maí kl. 11:00. Mæting er á bílastæðin neðan við Bessastaðakirkju og verður gengið þaðan um Álftanesið. Kirkjan verður heimsótt og skansinn þar sem Óli Skans bjó og ef til villContinue reading →

  • Sakamaðurinn – Þáttur Árna Grímssonar

    Örkin, færeyska sjómannaheimilið Brautarholt 29, Reykjavík, Iceland

    Fyrsti félagsfundur Ættfræðifélagsins í vetur verður 26. september næstkomandi. Þá mun Ragnar Snær Karlsson halda erindi um Árna Grímsson, sem hann kallar Sakamaðurinn - Þáttur Árna Grímssonar. Fundurinn fer fram á nýjum stað, Færeyska sjómannaheimilinu, Örkinni, Brautarholti 29 í Reykjavík. Fundurinn er öllum opinn og hefst kl. 16:00. Kaffi og veitingar.