• Elín prestsins

    Þjóðskjalasafn Íslands Laugavegur 162, Reykjavík, Iceland

    Á félagsfundi fimmtudaginn 31. mars 2022 mun Guðfinna Ragnarsdóttir, ritstjóri Fréttabréfsins, fjalla um Elínu Jónsdóttur, „Elínu prestsins“ eins og hún var kölluð fyrir vestan. Hún var systir Bjarna frá Vogi.

  • Fellur niður – Uppruni íslensku sauðkindarinnar: Fornerfðafræði og dýrabeinafornleifafræði

    Þjóðskjalasafn Íslands Laugavegur 162, Reykjavík, Iceland

    Vegna óviðráðanlegra ástæðna fellur þessi fyrirlestur niður, því miður Á félagsfundi Ættfræðifélagsins 28. apríl 2022 mun Albína Hulda Pálsdóttir dýrabeinafornleifafræðingur og doktorsnemi við Háskólann í Osló flytja fyrirlestur um uppruna íslensku sauðkindarinnar, fornerfðafræði og dýrabeinafornleifafræði. Sauðkindur á beit. Sauðkindin spilaði lykilhlutverk í landnámi Íslands á 9. öld en segl víkingaskipanna voru ofin úr ull. Ullin,Continue reading →

  • Vorgangan um Þingholtin

    Menntaskólinn í Reykjavík Lækjargötu, Reykjavík, Iceland

    Vorganga Ættfræðifélgsins verður um Þingholtin í þetta sinn og verður laugardaginn 21. maí kl. 11:00. Leiðsögumenn verða Guðfinna Ragnarsdóttir og Magnús Grímsson. Mæting er við aðaldyr Menntaskólans í Reykjavík laugardaginn 21. maí kl. 11:00.

  • Jón Sverrisson – langferðamaður úr Meðallandi

    Þjóðskjalasafn Íslands Laugavegur 162, Reykjavík, Iceland

    Fyrsti fyrirlestur haustsins verður um Jón Sverrisson, sem hóf búskap í Meðallandi, flutti síðar til Vestmannaeyja þar sem hann var fiskmatsmaður og síðast bjó hann í Reykjavík. Bók með sama titli kom út í lok ársins 2021 og er höfundur Jón Árni Friðjónsson, barnabarn Jón Sverrissonar. Jón Árni mun halda þennan fyrirlestur.

  • Ættfræðiupplýsingar á vefjum Þjóðskjalasafns

    Þjóðskjalasafn Íslands Laugavegur 162, Reykjavík, Iceland

    Næsti félagsfundur verður þann 27. október kl. 16:00. Þá mun Unnar Ingvarsson fagstjóri stafrænnar endurgerðar á Þjóðskjalasafni ræða við okkur um ættfræðiupplýsingar á vefjum Þjóðskjalasafns.

  • Bíbí í Berlín

    Þjóðskjalasafn Íslands Laugavegur 162, Reykjavík, Iceland

    Sólveig Ólafsdóttir ætlar að tala við okkur um Bíbí í Berlín, Bjargeyju Kristjánsdóttur í Berlín við Hofsós

  • Um mannanöfn að fornu og nýju

    Þjóðskjalasafn Íslands Laugavegur 162, Reykjavík, Iceland

    Á fyrsta félagsfundi ársins, fimmtudaginn 26. janúar 2023, mun Professor Emeritus Guðrún Kvaran tala við  okkur um íslensk mannanöfn að fornu og nýju

  • Aðalfundur 2023

    Þjóðskjalasafn Íslands Laugavegur 162, Reykjavík, Iceland
    Aðalfundir

    Aðalfundur Ættfræðifélagsins verður haldinn fimmtudaginn 23. febrúar 2023 í Þjóðskjalasafni Íslands, Laugavegi 162, 3. hæð og hefst klukkan 16:00. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf í samræmi við 3. gr. laga félagsins. Skýrsla stjórnar. Endurskoðaðir ársreikningar lagðir fram. Umræða og atkvæðagreiðsla um skýrslu stjórnar og ársreikningana. Lagabreytingar. Kosningar samkvæmt 4. grein. Árgjald ákveðið. Önnur mál.  

  • Um heimagrafreiti

    Þjóðskjalasafn Íslands Laugavegur 162, Reykjavík, Iceland

    Hjalti Hugason professor emeritus mun koma til okkar fimmtudaginn 30. mars og tala við okkur um heimagrafreiti. Heimagrafreitir eru á ýmsum stöðum á landinu. Ekki er gert ráð fyrir að aðrir fái þar leg en einstaklingar úr fjölskyldu þess sem leyfi hefur fyrir heimagrafreitnum.

  • Jón Eiríksson konferensráð

    Þjóðskjalasafn Íslands Laugavegur 162, Reykjavík, Iceland

    Næsti félagsfundur Ættfræðifélagsins verður fimmtudaginn 27. apríl kl. 16:00 í húsi Þjóðskjalasafns. Þá mun Margrét Gunnarsdóttir tala um Jón Eiríksson konferensráð og viðreisn Íslands á 18. öld.