Sullaveiki

Sullaveiki á seinni hluta 19. aldar


Nánar um viðburð


Sullaveiki er smitsjúkdómur og var alvarlegt heilsufarsvandamál á Íslandi þar til fyrir um einni öld síðan. Það tókst að stemma stigu við þessum vágesti með almenningsfræðslu, fyrirbyggjandi aðgerðum og læknisinngripum. Rakin er saga tvítugs hreppsómaga, úr Húnavatnssýslu, sem veslaðist upp úr þessum sjúkdómi og lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur. Hann lýsti eigin vanheilsu og döpru hlutskipti í áhrifamiklu bréfi til læknis síns.

Eiríkur Jónsson yfirlæknir fjallar um sullaveikina og Jón Torfason segir frá framættum og örlögum ungs manns sem lést fyrir aldur fram úr þessum sjúkdómi.

 

 

Samfélagsmiðlar