Allir viðburðir

Herúlar
Á fundi Ættfræðifélagsins fimmtudaginn 30. október flytur Björn Jónsson lögfræðingur og varaformaður Ættfræðifélagsins erindi sem hann kallar: Eru Arnfirðingar af
Sæmundur Hólm
Fimmtudaginn 25. september nk. hefjum við haustið hjá Ættfræðifélaginu. Þá kemur Sigrún Magnúsdóttir þjóðfræðingur og fv. ráðherra til okkar ásamt
Gálgaklettur
Vorgangan verður farin fimmtudaginn 22. maí kl. 11:00 undir leiðsögn Ragnars Snæs Karlssonar. Gengið verður í Gálgahrauni að Gálgakletti, sem
Icelandic Roots
Á næsta félagsfundi Ættfræðifélagsins mun Ragnar Snær Karlsson fjalla um Vesturfara, Icelandic Roots og Snorraverkefnið. Fundurinn verður haldinn í aðstöðu
Aðalfundur Ættfræðifélagsins verður haldinn fimmtudaginn 27. febrúar á Hótel Örkin, Færeyska sjómannaheimilinu við Brautarholt og hefst kl. 16:00 Dagskrá: Venjuleg
Hallgrímsharpan
Fyrsti minnisvarðinn á Íslandi var afhjúpaður árið 1885. Það var Hallgrímsharpan sem stendur norðan undir kirkjudyrum Dómkirkjunnar. Síðan þá hafa
Sigurður B. Sivertsen
Á næsta félagsfundi Ættfræðifélagsins, fimmtudaginn 28. nóvember, mun Ragnar Snær Karlsson flytja erindi um séra Sigurð B. Sívertsen sóknarprest á
Hannesarskjól
Fimmtudaginn 24. október mun Sölvi Sveinsson, cand.mag., fv. skólastjóri flytja erindi sem hann kallar Orðlist Hannesar Péturssonar. Fundurinn verður haldinn
Aftökutæki
Fyrsti félagsfundur Ættfræðifélagsins í vetur verður 26. september næstkomandi. Þá mun Ragnar Snær Karlsson halda erindi um Árna Grímsson, sem
Bessastaðir
Nú þegar sumrið er á næsta leiti höfum við haft vorgöngu Ættfræðifélagsins og verður engin breyting á því. Við munum
Lóa
Samkvæmt venju ætti síðasti félagsfundur Ættfræðifélagsins á þessu vori að vera síðasta fimmtudag í apríl-mánuði, þann 25. apríl, en þar
Bátur við Grindavík
Næsti félagsfundur Ættfræðifélagsins verður haldinn á nýjum stað, Færeyska sjómannaheimilinu. Örkinni, á horni Skipholts og Brautarholts í Reykjavík og verður
Ættfræðifélagið
Aðalfundur Ættfræðifélagsins fyrir árið 2023 verður haldinn fimmtudaginn 29. febrúar 2024 í Þjóðskjalasafninu, 3. hæð. Venjuleg aðalfundarstörf. Fundurinn hefst kl.
Hnífsdalur
Gleðilegt nýtt ár Fyrsti félagsfundur ársins verður haldinn fimmtudaginn 25. janúar, kl. 16:00. Þá mun Kristján Pálsson sagnfræðingur og fv.
Skógar
Næsti félagsfundur Ættfræðifélagsins verður fimmtudaginn 30. nóvember. Þá mun Guðfinna Ragnarsdóttir, ritstjóri Fréttabréfs Ættfræðifélagsins, halda fyrirlestur sem hún kallar Að
Fréttabréfið.
Um þessar mundir eru 40 ár síðan Fréttabréf Ættfræðifélagsins sá fyrst dagsins ljós. Fundurinn er helgaður fréttabréfinu að þessu sinni
Herskip
Fimmtudaginn 5. október flytur Halldór Baldursson sagnfræðingur og læknir fyrirlestur um herskipið Göteborg úr flota konungs vors, Friðriks fjórða. Skipinu
Laugarneshverfið
Fimmtudaginn 18. maí, á uppstigningardag, verður hin hefðbundna vorganga Ættfræðifélagsins. Þá verður gengið um Laugarneshverfið. Þar raða sér glæstar byggingar
Eru Arnfirðingar af Herúlum komnir?

Eru Arnfirðingar af Herúlum komnir?

Á fundi Ættfræðifélagsins fimmtudaginn 30. október flytur Björn Jónsson lögfræðingur og varaformaður Ættfræðifélagsins erindi sem hann kallar: Eru Arnfirðingar af Herúlum komnir?
Fundurinn verður haldinn í Færeyska sjómannaheimilinu Örkinni, Brautarhoilti 29, á horni Skipholts og Brautarholts. Fundurinn hefst kl. 16:00.
Kaffi, meðlæti og spjall
Aðgangur öllum opinn

,,Hylur þig lygi heimurinn“

,,Hylur þig lygi heimurinn“

Fimmtudaginn 25. september nk. hefjum við haustið hjá Ættfræðifélaginu. Þá kemur Sigrún Magnúsdóttir þjóðfræðingur og fv. ráðherra til okkar ásamt Dagbjörtu Höskuldsdóttur bókaunnanda og fv. bóksala. Þær ætla að flytja okkur sögubrot frá ævi og störfum listamannsins, skáldsins og klerksins Sæmundar Hólm Magnússonar (1749-1821).
Fundurinn verður haldinn í Færeyska sjómannaheimilinu á horni Skipholts og Brautarholts í Reykjavík og hefst hann kl. 16:00.
Allir velkomnir

Vorganga Ættfræðifélagsins

Vorganga Ættfræðifélagsins

Vorgangan verður farin fimmtudaginn 22. maí kl. 11:00 undir leiðsögn Ragnars Snæs Karlssonar.
Gengið verður í Gálgahrauni að Gálgakletti, sem er gamli aftökustaðurinn frá Bessastöðum. Um 2,5 km ganga báðar leiðir. Gangan er ekki alls staðar góð og greiðfær. Á köflum getur hún verið erfið fyrir þá sem ekki eru fótvissir. Mælt er með göngfustöfum. Búið ykkur eftir veðri.
Bílastæði eru við jaðar Gálgahrauns, í Sjálandshverfi í Garðabæ við hringtorgið á gatnamótum Vífilsstaðavegar og Hraunsholtsbrautar. Gangan getur tekið um 2-3 klst.

Vesturfarar, Icelandic Roots og Snorraverkefnið

Vesturfarar, Icelandic Roots og Snorraverkefnið

Á næsta félagsfundi Ættfræðifélagsins mun Ragnar Snær Karlsson fjalla um Vesturfara, Icelandic Roots og Snorraverkefnið.
Fundurinn verður haldinn í aðstöðu Ættfræðifélagsins hjá Hótel Örkinni, Færeyska sjómannaheimilinu við Brautarholt í Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 16:00 og er öllum opinn.
Kaffi á eftir fund.

Aðalfundur Ættfræðifélagsins

Aðalfundur Ættfræðifélagsins

Aðalfundur Ættfræðifélagsins verður haldinn fimmtudaginn 27. febrúar á Hótel Örkin, Færeyska sjómannaheimilinu við Brautarholt og hefst kl. 16:00
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.

Minnisvarðar á Íslandi

Minnisvarðar á Íslandi

Fyrsti minnisvarðinn á Íslandi var afhjúpaður árið 1885. Það var Hallgrímsharpan sem stendur norðan undir kirkjudyrum Dómkirkjunnar. Síðan þá hafa margir minnisvarðar séð dagsins ljós hér á landi og enn eru minnisvarðar reistir á Íslandi, síðast í Vestmannaeyjum í desember 2024. Það má búast við að um 800 minnisvarðar hafi verið reistir vítt og breytt um landið, hvort sem er í byggð eða í óbyggðum.
Eiríkur Þ. Einarsson formaður Ættfræðifélagsins ætlar að tala um minnisvarða á næsta félagsfundi sem haldinn verður í Hótel Örkinni, Færeyska Sjómannaheimilinu við Brautarholt fimmtudaginn 30 janúar 2025.
Fundurinn hefst kl. 16:00 og er opinn öllum.
Veitingar að fundi loknum.

Séra Sigurður B. Sivertsen sóknarprestur á Útskálum

Séra Sigurður B. Sivertsen sóknarprestur á Útskálum

Á næsta félagsfundi Ættfræðifélagsins, fimmtudaginn 28. nóvember, mun Ragnar Snær Karlsson flytja erindi um séra Sigurð B. Sívertsen sóknarprest á Útskálum og stofnanda barnaskóla, Gerðaskóla í Garði.
Erindið verður haldið í Færeyska sjómannaheimilinu, Örkinni, Brautarholti 29 á horni Skipholts.
Fundurinn hefst kl. 16:00 og er öllum opinn.

Orðlist Hannesar Péturssonar

Orðlist Hannesar Péturssonar

Fimmtudaginn 24. október mun Sölvi Sveinsson, cand.mag., fv. skólastjóri flytja erindi sem hann kallar Orðlist Hannesar Péturssonar.
Fundurinn verður haldinn kl. 16:00 í Færeyska sjómannaheimilinu Örkinni, Brautarholti 29, á horni Skipholts og Brautarholts.
Kaffi, meðlæti og spjall – Fundurinn er öllum opinn.

Sakamaðurinn – Þáttur Árna Grímssonar

Sakamaðurinn – Þáttur Árna Grímssonar

Fyrsti félagsfundur Ættfræðifélagsins í vetur verður 26. september næstkomandi. Þá mun Ragnar Snær Karlsson halda erindi um Árna Grímsson, sem hann kallar Sakamaðurinn – Þáttur Árna Grímssonar.
Fundurinn fer fram á nýjum stað, Færeyska sjómannaheimilinu, Örkinni, Brautarholti 29 í Reykjavík.
Fundurinn er öllum opinn og hefst kl. 16:00.
Kaffi og veitingar.

Vorganga um Álftanes

Vorganga um Álftanes

Nú þegar sumrið er á næsta leiti höfum við haft vorgöngu Ættfræðifélagsins og verður engin breyting á því.
Við munum fara í gönguna laugardaginn 25. maí kl. 11:00.
Mæting er á bílastæðin neðan við Bessastaðakirkju og verður gengið þaðan um Álftanesið.
Kirkjan verður heimsótt og skansinn þar sem Óli Skans bjó og ef til vill verður farið eitthvað víðar um Nesið.
Þátttaka í göngunni er öllum frjáls.
Leiðsögumaður verður Ragnar Snær Karlsson.

Félagsfundur í apríl fellur niður

Félagsfundur í apríl fellur niður

Samkvæmt venju ætti síðasti félagsfundur Ættfræðifélagsins á þessu vori að vera síðasta fimmtudag í apríl-mánuði, þann 25. apríl, en þar sem hann ber upp á sumardaginn fyrsta þá fellur fundur niður. Næsti viðburður félagsins er þvi vorgangan sem verður auglýst nánar síðar.
Þráðurinn verður svo tekinn upp aftur í haust.
Stjórn Ættfræðifélagsins óskar öllum félagsmönnum gleðilegs sumars.

Um færeyska kútterinn Anna úr Tóftum og fleiri kúttera

Um færeyska kútterinn Anna úr Tóftum og fleiri kúttera

Næsti félagsfundur Ættfræðifélagsins verður haldinn á nýjum stað, Færeyska sjómannaheimilinu. Örkinni, á horni Skipholts og Brautarholts í Reykjavík og verður haldinn fimmtudaginn 28. mars, sem ber upp á skírdag að þessu sinni.
Á fundinum ætlar Ragnar Sævar Karlsson að tala um færeyska kútterinn Önnu úr Tóftum og nokkra aðra færeyska kúttera sem farist hafa hér við land, en í ár eru liðin eitthundrað ár frá því Anna úr Tóftum fórst við Grindavík. Af því tilefni verður fundurinn í Færeyska sjómannaheimilinu, Örkinni, sem er á horni Skipholts og Brautarhols í Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 16:00.

Aðalfundur Ættfræðifélagsins fyrir árið 2023

Aðalfundur Ættfræðifélagsins fyrir árið 2023

Aðalfundur Ættfræðifélagsins fyrir árið 2023 verður haldinn fimmtudaginn 29. febrúar 2024 í Þjóðskjalasafninu, 3. hæð.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Fundurinn hefst kl. 16:00
Kaffi og meðlæti eftir fund
Fundurinn er opinn öllum

Hnífsdalur

Hnífsdalur

Gleðilegt nýtt ár
Fyrsti félagsfundur ársins verður haldinn fimmtudaginn 25. janúar, kl. 16:00.
Þá mun Kristján Pálsson sagnfræðingur og fv. alþingismaður flytja erindi um Hnífsdal, en bók hans Saga Hnífsdals kom út fyrir jólin.
Saga Hnífsdals er saga fólksins þar frá landnámi til sameiningar við Ísafjörð árið 1971. Hér er lýst sviptingasamri jarðasögu, frá eignarhaldi Vatnsfirðinga fyrr á tímum til áhrifa heimamanna og Ögurmanna.
Fundurinn verður í Þjóðskjalasafninu, á 3. hæð og hefst kl. 16:00.
Fundurinn er öllum opinn. Kaffiveitingar á eftir fund.

Að máta sig við söguna

Að máta sig við söguna

Næsti félagsfundur Ættfræðifélagsins verður fimmtudaginn 30. nóvember.
Þá mun Guðfinna Ragnarsdóttir, ritstjóri Fréttabréfs Ættfræðifélagsins, halda fyrirlestur sem hún kallar Að máta sig við söguna.
Fyrirlesturinn verður haldinn í Þjóðskjalasafninu á þriðju hæð og hefst hann kl. 16:00.

Allir velkomnir!
Kaffi og með því

Fréttabréf Ættfræðifélagsins 40 ára

Fréttabréf Ættfræðifélagsins 40 ára

Um þessar mundir eru 40 ár síðan Fréttabréf Ættfræðifélagsins sá fyrst dagsins ljós.
Fundurinn er helgaður fréttabréfinu að þessu sinni og verður útgáfa þess kynnt og lesnar valdar greinar eða útdráttur úr greinum frá ýmsum tímum.
Dagskránni stjórnar ritstjóri Fréttabréfins, Guðfinna Ragnarsdóttir
Fundurinn er haldinn í Þjóðskjalasafninu, 3. hæð á fimmtudaginn 26. október og hefst kl. 16:00.

„Þegar fylgdarskipið fórst”

„Þegar fylgdarskipið fórst”

Fimmtudaginn 5. október flytur Halldór Baldursson sagnfræðingur og læknir fyrirlestur um herskipið Göteborg úr flota konungs vors, Friðriks fjórða. Skipinu var hleypt til brots á Hraunsskeiði í Ölfusi 7. nóvember 1718. 174 skipverjar björguðust og þurftu að hafa vetursetu á Íslandi. Fjallað er um þau stjórnsýslulegu verkefni sem þurfti að leysa úr vegna strandsins.

Athugið breytta dagsetningu fyrsta fundar

Fundurinn hefst kl. 16:00 í húsi Þjóðskjalasafnsins að Laugavegi 162, 3. hæð, Reykjavík.
Fundurinn er öllum opinn.
Kaffi og með því.

Vorgangan um Laugarneshverfið

Vorgangan um Laugarneshverfið

Fimmtudaginn 18. maí, á uppstigningardag, verður hin hefðbundna vorganga Ættfræðifélagsins. Þá verður gengið um Laugarneshverfið. Þar raða sér glæstar byggingar Einars Sveinssonar, Guðjóns Samúelssonar og Ásmundar Sveinssonar, gömul hús stríðsáranna af flugvellinum, gömlu Þvottalaugarnar og undir fótum okkar renna Fúlilækurinn og Laugalækurinn.
Leiðsögumenn verða Guðfinna Ragnarsdóttir og Magnús Grímsson.
Mæting við Laugarneskirkju kl. 11:00.